Listasafnið kaupir verk af Guðnýju, Jónu Hlíf og Magnúsi

Listasafnið kaupir verk af Guðnýju, Jónu Hlíf og Magnúsi
Guðný Kristmannsdóttir við verkið Play Me.

Listasafnið á Akureyri festi á dögunum kaup á lykilverki Guðnýjar Kristmannsdóttur, Play Me, af sýningu hennar Kveikja sem lauk nýverið á safninu. Verkið hlaut verðskuldaða athygli sem og sýningin sjálf. Á fundi Listasafnsráðs var einnig ákveðið að kaupa verk af myndlistarfólkinu Jónu Hlíf Halldórsdóttur og Magnúsi Helgasyni.

Í sýningartexta sem listfræðingurinn Pari Stave skrifaði segir meðal annars: „Djarfar og kröftugar pensilstrokur bera ekki vitni um hvatvísi í stórfelldum málverkum akureyrsku listakonunnar Guðnýjar Kristmannsdóttur (f. 1965), heldur birtast villtar og goðsagnakenndar skepnur upp úr löngu og meðvituðu ferli. Þykk upphleðsla lita, þunnar málningastrokur og hrár grunnur á yfirborði málverksins skapa kraftmiklar, en yfirvegaðar hliðstæður sem blása lífi í skepnurnar. Skapandi og hrekkjótt; gleði þeirra er smitandi. Play Me er titill eins verksins. Athugið að þér er ekki endilega boðið til leiks, heldur er verið að lokka þig til þess að gefa lausan tauminn og ganga inn í heim nautnalegrar gleði listamannsins.“