Opin gestavinnustofa

Sýning í gestavinnustofu Listasafnsins á Akureyri á morgun laugardag kl. 15:30. Öll eru hjartanlega velkomin.
 
HoneyBones er tónlistar- og listadúó skipað þeim Juro Kosec og Melindu Joy. Saman skapa þau list þar sem tónlist, myndlist og kvikmynd mætast og úr verður heildstæð upplifun.
 
Melinda Joy er söngvaskáld og bassaleikari með djúpan, djassaðan hljóm, Juro Kosec vinnur á mörkum tónlistar, kvikmynda og ljósmyndunar. Saman mynda þau HoneyBones – hljóðheim þar sem mýkt og kraftur fléttast saman.