Flýtilyklar
Opnun á sýningu Vatnslitahátíðar Íslands
Verið öll hjartanlega velkomin á opnun á sýningu Vatnslitahátíðar Íslands 2026, fimmtudaginn 10. september kl. 17 í sölum 10 og 11 (Ketilhús) í Listasafninu á Akureyri.
Aurora Vatnslitahátíð Íslands 2026, er alþjóðleg hátíð sem haldin verður á Akureyri 10.–13. september og í tengslum við hátíðina verður sýning í Listasafninu á Akureyri 10.–27. september.
Heimsfrægum vatnslitamálurum er boðið að sækja hátíðina, en einnig innlendum málurum sem þykja skara fram úr. Þess er vænst að vatnslitamálarar hvaðanæva að, innlendir sem erlendir, heimsæki Akureyri til að njóta þeirra viðburða sem í boði verða. Verndari hátíðarinnar er listmálarinn Guðmundur Ármann Sigurjónsson.
Boðsgestir eru listamennirnir Nicolás Lopez frá Perú, Björn Bernström frá Svíþjóð, Julia Ustinovich frá Póllandi, Julia Barminova frá Portúgal og Prafull Sawant frá Indlandi. Þessir meistarar vatnslitanna halda námskeið í bænum og er nú þegar uppselt á þau öll.
Dómnefnd valdi úr innsendum verkum sem eru á sýningunni í Listasafninu 10.–27. september. Á hátíðinni sjálfri 10.–13. september verður boðið upp á vinnustofur og námskeið, sýnikennslu og kynningar á vörumerkjum sem tengjast vatnslitum.
Vatnslitahátíðin er haldin í samstarfi við Listasafnið á Akureyri og Vatnslitafélag Íslands.
Verkefnisstjóri: Ragnar Hólm Ragnarsson
Leit