Flýtilyklar
Skapandi fataviðgerðir
10.03.2026
Skemmtilegur viðburður á vegum Sólarpönks - Bjartsýnishátíðar næstkomandi laugardag kl. 15-17, í fræðslurýminu á 3.hæð Listasafnsins. Þátttakendur læra að gera við föt á skapandi hátt.
Endilega taktu með flík sem þú vilt gefa lengra líf. Einnig verða flíkur á staðnum fyrir þau sem vilja taka þátt en hafa ekki flík meðferðis. Leiðbeinandi er Hildur Dagbjört en hún býr yfir áralangri reynslu af allskyns fataviðgerðum, og hefur sérlega mikla unun af sýnilegum fataviðgerðum sem sýna með stolti að þessi flík býður hraðtísku og skipulagðri úreldingu (e. planned obsolescence) birginn.
Fataviðgerðir eru sérstaklega valdeflandi þar sem við höfum hér skemmtilega leið til að skauta framhjá meiri fataframleiðslu og öllu sem henni fylgir. Hugsaðu þér – þú getur jafnvel hætt alveg að kaupa föt og bara gert við! Með hverri viðgerð öðlast flíkin meiri sögu og fegurð – umhyggjan skín í gegn!
Það er alls ekki nauðsynlegt að vera sérlega fær í saumaskap – í vinnustofunni getur þú lært allskonar einfaldar og skemmtilegar aðferðir. Fólk á öllum aldri er velkomið, og gott ef börn koma í fylgd fullorðinna.
Leit