Þriðjudagsfyrirlestur 24. mars / Hildigunnur Birgisdóttir

Þriðjudaginn 24. mars kl. 16:15 mun listakonan Hildigunnur Birgisdóttir leiða þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri. 
 
Hildigunnur er þekkt fyrir blæbrigðaríka listsköpun sem lítur gagnrýnum augum á hnattræn framleiðslu- og útflutningskerfi og á undarlegt lífshlaup varanna sem þau geta af sér.
 
Í verkum sínum dregur Hildigunnur athygli að hinu smáa, einnota hlutunum sem gjarnan eru fjöldaframleiddir fylgihlutir neyslumenningar: umbúðum, verðmiðum, merkingum og upplýsingakerfum. Hún gefur þessum hlutum ný hlutverk, umbreytir virði þeirra og merkingu algerlega þannig að hægt sé að upplifa þá aftengda uppruna sínum. 
 
Um efnistök sín segir Hildigunnur: „Óheppilegar afurðir neysluhyggju eru efniviðurinn og manngerð kerfi eru áhöldin.
Hildigunnur býr og starfar í Reykjavík, hún hefur sýnt víða en hún var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíræingnum, 2024. Verk hennar hafa einnig verið á sýningum í Listasafni Reykjavíkur; Listasafninu GES-2, sem rekið er af V-A-C Foundation í Moskvu og H2H í Aþenu. Verk hennar má meðal annars finna í safneign Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur og Nýlistasafnsins. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2003.
 
Verið öll hjartanlega velkomin. Enginn aðgangseyrir.