Þriðjudagsfyrirlestur: Kristján Ingimarsson

Þriðjudagsfyrirlestur: Kristján Ingimarsson
Kristján Ingimarsson.

Þriðjudaginn 30. september kl. 16.15 heldur Kristján Ingimarsson fyrsta Þriðjudagsfyrirlestur haustsins í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Tilurð Femina Fabula. Þar mun hann fjalla um sýndarveruleika innsetninguna Femina Fabula, sem nú stendur yfir í Listasafninu, listrænt samstarf, vinnuaðferðir og nýjar leiðir til að finna nýja nánd við áhorfendur. Aðgangur er ókeypis.

Kristján Ingimarsson er leikhúsmaður og leikhússtjóri, sem er fæddur á Íslandi en búsettur í Danmörku og þekktur fyrir líkamlegar og sjónrænar nálganir á leikhús. Hann er stofnandi og listrænn leiðtogi Kristján Ingimarsson Company og framleiðir sýningar sem fara yfir mörk leikhúss, sviðslistar, dans, myndlistar og innsetninga. Þekkt verk hans á alþjóðavettvangi eru BLAM! og ROOM 4.1 – LIVE. Hann leiðir einnig listræna samstarfið Hangar People þar sem blandast saman leikhús, innsetningar, leikjauppbygging og upplifunarform.

Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistarfélagsins og Gilfélagsins.