Flýtilyklar
Tólf tóna korter – Dimitrios Theodoropoulos
12.03.2026
Laugardaginn 14. mars kl. 15 og 16 opnar Dimitrios Theodoropoulos fyrsta TÓLF TÓNA KORTÉR ársins 2026.
Á tvennum ör-tónleikum (kortérslöngum) frumflytur hann eigið tónverk, Wonder Woman, og spinnur yfir það.Verkið er tileinkað öllum konum – og alveg sérstaklega Adriönu.
Dimitrios er búsettur á Akureyri og hefur lengi verið virkur í djasstónlistarsenu bæjarins, bæði með sólótónleikum og í samstarfi við fjölbreytta tónlistarmenn. Hann kennir gítarleik við Tónlistarskólann á Akureyri og er jafnframt forsprakki Baby Bop, djasshóps sem hann stofnaði ásamt nemendum við skólann.
Tilvalið er að skoða sýningar Listasafnsins í sömu ferð og jafnvel koma við á Ketilkaffi á jarðhæðinni ef svengir eða þyrstir í eitthvað meira en tón- og myndlist. Þar er komin nokkuð góð uppskrift að notalegum laugardagseftirmiðdegi.
Sóknaráætlun Norðurlands Eystra og Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkja TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ.
Verið öll hjartanlega velkomin. Enginn aðgangseyrir.
Leit