A! Gjörningahátíð 2026 / Performance festival / Opið fyrir umsóknir

Nú er opið fyrir umsóknir í tenglsum við hátíðina á netfanginu a@listak.is 

(English below)

A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega. Hátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Gilfélagsins, Listnámsbrautar VMA og Myndlistarfélagsins á Akureyri og eru viðburðir haldnir í hinum ólíku menningarhúsum bæjarins.

A! er einstök hátíð á landsvísu og snýr eingöngu að gjörningalist. Fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga eru á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum, dans- og leikhúsfólki og eru þeir innlendir sem erlendir. Á hverju ári breytir hátíðin Akureyri í suðupott spennandi gjörninga. Ókeypis er inn á alla viðburði.

Listrænn stjórnandi: Sara Bjarnason

Applications for the festival are now open at the email address a@listak.is.

A! is a four-day international performance art festival held annually. The festival is a collaborative project between the Akureyri Art Museum, the Akureyri Theatre Company, Hof Cultural Centre of Akureyri, the Gil Society, the Art Department of Akureyri Comprehensive College (VMA) and the Akureyri Visual Arts Society, with events held in the town's various cultural venues.

 

A! is a unique  festival dedicated exclusively to performance art. The program features a wide variety of performances and theatre-related works of all kinds. Participants include young and up-and-coming artists, alongside experienced and well known performance artists, dancers, and theatre professionals, from both Iceland and abroad. 

Every year, the festival transforms Akureyri into a melting pot of exciting events.

Admission to all events is free.  

The commission fee is 80.000 ISK per performance. Applications are sent to a@listak.is and should include a good description of the performance and portfolio/CV. Visual material is encouraged.
 
Project manager: Sara Bjarnason