Erindi frá JÖRFÍ - Jöklarannsóknafélagi Íslands

Í tengslum við sýninguna Bráðnun og sýningar á heimildarmyndinni Tíminn og vatnið hefst dagskráin kl. 14:30 á erindi frá Jöklarannsóknafélagi Íslands. Þar verður fjallað um jökla Íslands, rannsóknir á þeim og mikilvægi sjálfboðaliðastarfs við vöktun þeirra. Að erindinu loknu, kl. 15:00, hefst sýning myndarinnar.

Dagskrá:

  • Föstudagur 27. nóvember 2026
    Erindi: Jöklarannsóknafélag Íslands
    Fyrirlesari: Andri Gunnarsson, jöklafræðingur og formaður JÖRFÍ
  • Laugardagur 5. desember 2026 
  • Erindi: Jöklar Íslands - staða þekkingar
    Fyrirlesari: Tómas Jóhannesson, jöklafræðingur á Veðurstofu Íslands
  • Laugardagur 12. desember 2026 
    Erindi: Jöklamælingar norður á Ströndum - Fjölskyldusaga
    Fyrirlesari: Ragnar Heiðar Þrastarson, fagstjóri landupplýsingakerfa á Veðurstofu Íslands og sporðamælingamaður
  • Laugardagur 9. janúar 2027
    Erindi: Vöktun jökla og þátttaka almennings (lokadagur sýningarinnar).
    Fyrirlesari: Hrafnhildur Hannesdóttir, jöklafræðingur á Veðurstofu Íslands og varaformaður JÖRFÍ 

Öll erindi hefjast kl. 14:30 og kvikmyndasýningar kl. 15:00.

Viðburðir og sýning eru haldin með stuðningi 66°Norður.