Flýtilyklar
Látum aftur vaða!
Skráning í seinni listsmiðju Listasafnsins undir yfirskriftinni Látum vaða! stendur nú yfir. Smiðjan verður haldin 30. september kl. 13 undir handleiðslu Egils Loga Jónassonar myndlistarmanns. Að þessu sinni fá börn og fullorðnir tækifæri til að skapa sitt eigið verk út frá tveimur ólíkum póstkortum og mála þau svo saman í eina mynd. Að því loknu fer myndin í ramma sem þátttakendur skreyta sjálfir. Egill Logi nam myndlist við Listaháskóla Íslands og vinnur í ýmsa miðla. Hann er einn af aðstandendum listahópsins Kaktus.
Fyrri smiðjan var haldin í byrjun mánaðarins undir handleiðslu Fríðu Karlsdóttur, myndlistarkonu, þar sem skoðaðir voru persónuleikar og portrett. Báðar smiðjurnar tengjast sýningunni Einfaldlega einlægt, en þar má sjá verk listakonunnar Katrínar Jósepsdóttur, sem oftast var kölluð Kata saumakona. Málverk Kötu eru einlæg og gefa sig ekki út fyrir að vera neitt annað en þau eru. Listakonan „lét vaða“ á eigin forsendum og virka verkin því sem mikilvæg hvatning fyrir bæði börn og fullorðna. Allir geta skapað og útkoman getur komið á óvart.
Ekkert þátttökugjald en afar takmarkaður fjöldi og skráning nauðsynleg á heida@listak.is.
Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og verkefnastjóri er Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi.