Flýtilyklar
Leiðsögn með Guðmundi Ármanni
19.02.2026
Laugardaginn 21. febrúar mun Guðmundur Ármann vera með leiðsögn um sýningu sína Aðflæði. Hefst hún kl. 15 og er aðgangur innifalinn í miðaverði á Listasafnið.
Guðmundur Ármann (f. 1944) á að baki langan feril í myndlist og myndlistarkennslu. Hann hefur haldið 52 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Aðflæði er yfirlitssýning á 65 ára ferli Guðmundar og er elsta myndin frá 1969. Tvívið myndlist - málverk, grafík og teikningar - eru í aðalhlutverki, en einnig má sjá nokkur þrívíð verk úr velktum viðarbútum sem rak á fjörurnar.
Leit