Menningarsúpa #3

(English below)
 
Súpa þrjú, þar sem við tökum upp þráðinn með óformlegan mánaðarlegan hitting fyrir fólk sem hefur áhuga á menningu og menningarlífi á Akureyri og í nágrenni.
 
Að þessu sinni mun Signý Jónasdóttir hjá Markaðsstofu Norðurlands vera með kynningu/spjall. Nánari upplýsingar síðar. 
Engin formleg dagskrá að öðru leyti – bara gott fólk, samtal og súpa frá þeim á Ketilkaffi! Endilega skráið ykkur á Facebook-viðburðinn hér svo starfsfólk Ketilkaffis hafi sem gleggsta hugmynd um fjöldann sem ætlar að fá sér súpudisk.
 
Öll áhugasöm eru hjartanlega velkomin!
 
Menningarsúpan er vettvangur til að hittast, kynnast, spjalla og deila hugmyndum, hvort sem þú starfar við menningu, ert listamaður, skipuleggur viðburði, ert þátttakandi í menningarlífinu eða hefur einfaldlega áhuga á því sem er að gerast.
Við ræðum það sem er á döfinni, deilum hugmyndum og reynslu, kynnumst því sem aðrir eru að gera og spáum í hvernig við getum styrkt og auðgað menningarlífið á svæðinu.
 
//
 
We're picking up where we left off with our informal monthly get-together for anyone interested in culture and the cultural scene in Akureyri and the surrounding area.
 
This time, Signý Jónasdóttir from the North Iceland Marketing Office (Markaðsstofa Norðurlands) will join us for a presentation / informal chat. More details to follow.
 
No other formal programme, just good people, great conversation and delicious soup from the team at Ketilkaffi! Please let us know you're coming by signing up via the Facebook event here, so the team at Ketilkaffi can get a better idea of how many soup bowls to prepare.
Everyone with an interest is warmly welcome!
 
Menningarsúpan (The Cultural Soup) is a space to meet, connect, chat and share ideas. Whether you work in the cultural sector, are an artist, organise events, take part in cultural activities or simply enjoy keeping up with what's happening, you're very welcome.
We'll talk about what's coming up, exchange ideas and experiences, find out what others are working on and explore how we can support and enrich the cultural life of our region.