Menningarsúpan 26. október

Súpa tvö, þar sem við tökum upp þráðinn með óformlegan mánaðarlegan hitting fyrir fólk sem hefur áhuga á menningu og menningarlífi á Akureyri og í nágrenni.
 
Menningarsúpan er vettvangur til að hittast, kynnast, spjalla og deila hugmyndum, hvort sem þú starfar við menningu, ert listamaður, skipuleggur viðburði, ert þátttakandi í menningarlífinu eða hefur einfaldlega áhuga á því sem er að gerast. 
Við ræðum það sem er á döfinni, deilum hugmyndum og reynslu, kynnumst því sem aðrir eru að gera og spáum í hvernig við getum styrkt og auðgað menningarlífið á svæðinu.
 
Önnur súpan fer fram mánudaginn 26. október kl. 12-13 á Ketilkaffi. Umfjöllunarefni verður auglýst síðar. 
Engin formleg dagskrá að öðru leyti - bara gott fólk, samtal og súpa frá þeim á Ketilkaffi! Endilega skráið ykkur "going" á Facebook-viðburðinn hér svo starfsfólk Ketilkaffis hafi sem gleggsta hugmynd um fjöldann sem ætlar að fá sér súpudisk.
 
Öll áhugasöm eru hjartanlega velkomin!