Opin gestavinnustofa – Andrea Weber

Opin gestavinnustofa Listasafnsins – fimmtudaginn 13. ágúst kl. 16
 
Fransk-þýska listakonan Andrea Weber býður gestum að kynna sér ný verk sem hún hefur unnið í gestavinnudvöl hjá Listasafninu á Akureyri.
Verk Webers mótast af rýmum og himni þeirra staða sem hún dvelur á með áherslu á veðrið sem lifandi og tilvistarkennt afl. Í verkum sínum vinnur hún með gegnsæjan og léttan pappír og tvinnar saman tvö verk; Weather Transcription og Dance Drawing. Í verkunum má sjá hvernig andrúmsloftið mætir hreyfingu líkamans í rýminu. Útkoman er ígrunduð og persónuleg framsetning þar sem ljós, hreyfing og efni fléttast saman og endurspegla landslagið sem hefur lengi verið miðja listsköpunar hennar.
 
Öll hjartanlega velkomin!