Tríó Akureyrar - Sjóðheit sveitarómantík og sykurhúðuð sjómennska

Miðvikudaginn 16. júlí mun Tríó Akureyrar halda notalega tónleika á Ketilkaffi, sem staðsett er í Listasafninu á Akureyri.

Á efnisskránni eru meðal annars lög um sjóðheita íslenska sveitarómantík, náttúru, framhjáhald, hesta, dans og sjómennsku – sannkallaðar perlur íslenskrar dægurlagatónlistar.

Tríó Akureyrar skipa þau Jón Þorsteinn Reynisson harmonikkuleikari, Valmar Vaeljaots, leikari og tónlistarmaður, og Erla Dóra Vogler söngkona.

Gestir geta notið matar og drykkja á meðan þeir hlýða á og dilla sér við okkar yndislegu íslensku – og íslenskuðu – dægurlög, sem ylja sálinni líkt og malt og hangikjöt. Lög sem gerð voru ódauðleg af söngvurum á borð við Hauki Morthens, Villa Vill, Erlu Þorsteins og mörgum öðrum lifna á ný í hlýlegri og skemmtilegri stemningu á Ketilkaffi.

Verið öll velkomin!

Viðburðurinn nýtur stuðnings Listasumars 2026.