Tvær leiðsagnir helgina 21.-22. apríl

Tvær leiðsagnir helgina 21.-22. apríl
Leiðsagnir um sýninguna Sköpun bernskunnar 2026.
Tvær leiðsagnir verða í boði helgina 21.-22. apríl: 
 
  • Laugardagur kl. 15-15:30 – laugardagsleiðsögn
  • Sunnudagur kl. 11–12 – fjölskylduleiðsögn
Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar, leiðir báðar leiðsagnirnar og kynnir sýninguna Sköpun bernskunnar 2026.
 
Laugardagsleiðsögn: Í jákvæðu og skapandi umhverfi fá gestir tækifæri til að upplifa list með lifandi hætti, dýpka skilning sinn og tengja saman fortíð og nútíð í áhugaverðri leiðsögn um Sköpun bernskunnar.
Aðgangur innifalinn í miðaverði.
 
Fjölslylduleiðsögn: Heiða leiðir þátttakendur í gegnum sýninguna og að lokinni leiðsögn fá börn og fullorðnir tækifæri til að skapa sitt eigið listaverk, innblásið af sýningunni.
Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu. Hlökkum til að sjá þig,