Flýtilyklar
Afmæli: Samsýning norðlenskra myndlistarmanna
			
					02.01.2023			
	
	Listasafnið á Akureyri efnir til sýningar á verkum eftir norðlenska myndlistarmenn 3. júní til 24. september 2023. Að þessu sinni skulu myndlistarmennirnir vinna með þemað, Afmæli, í verkum sínum. Dómnefnd velur úr umsóknum listamanna sem búa og/eða starfa á Norðurlandi eða hafa tengingu við svæðið. Opnað verður fyrir umsóknir 24. janúar og er umsóknarfrestur til og með 6. mars.
Vor/Sumar/Haustsýningar Listasafnsins á Akureyri eru tvíæringur og endurvekur þá góðu hefð að sýna hvað listamenn á svæðinu eru að fást við. Hún verður því fjölbreytt og mun gefa góða innsýn í líflega flóru myndlistar á Akureyri og Norðurlandi. Stefnt er að því að gefa út sýningarskrá með sýningunni.
Leit
 
                     
				
			 
					 
										