ALÞJÓÐLEG DANSVÍDEÓHÁTÍÐ
BOREAL SCREENDANCE FESTIVAL 2026
23.10.2026 – 15.11.2026
Salir 10 11

Boreal Screendance Festival er alþjóðleg dansvídeóhátíð sem haldin er á Akureyri. Fyrsta hátíðin fór fram í Mjólkurbúðinni í nóvember 2020, en nú teygir hún anga sína um allt Listagilið. Með Boreal skapast vettvangur til kynningar á dansvídeóum, með það að markmiði að leiða saman innlent og erlent listafólk, byggja brýr heimsálfa á milli og hvetja til samstarfs.
Á hátíðinni eru sýnd metnaðarfull dansvídeó alls staðar að úr heiminum. Verkin eru sýnd á breiðtjöldum, þeim varpað á veggi, glugga og fleiri fleti sýningarrýma, en mikil áhersla er lögð á að sýningarnar fari fram í faglegu umhverfi svo verkin njóti sín sem best. Sérstaða Boreal er fólgin í innsetningum sem settar eru upp í kringum sum verkin og veita þeim í senn meiri dýpt og nýja vídd.
Hátíðin stendur einnig fyrir fjölbreyttum danstengdum viðburðum og samkomum á sýningartímanum. Frítt er inn á alla viðburði.
Listrænn stjórnandi: Yuliana Palacios.