Dagskrá dansvídeóhátíðarinnar Boreal

Alþjóðlega dansvídeóhátíðin Boreal hefst með opnun í Listasafninu föstudagskvöldið 23. október kl. 20:00 og eru öll hjartanlega velkomin.
 
Þetta er í sjöunda sinn sem hátíðin er haldin og fara sýningarnar fram í Listasafninu, Mjólkurbúðinni og Deiglunni. Allir viðburðir eru opnir gestum að kostnaðarlausu og dagskrána má sjá á meðfylgjandi mynd.