Dillandi afrísk dans- og trommugleði fyrir alla fjölskylduna

Verið velkomin á dillandi afríska dans- og trommugleði fyrir alla fjölskylduna í Ketilhúsi á sumardaginn fyrsta, 23. apríl, kl. 14. 
 
FAR Fest Afríka á Íslandi var stofnuð árið 2009 af hjónunum Cheick Bangoura og Kristínu Álfheiði Árnadóttur frá Akureyri. Síðan þá hefur menningarhátíðin FAR Fest Afríka verið haldin árlega. Í tengslum við hátíðina hefur verið boðið upp á fjölbreytta viðburði, námskeið og fræðslu sem hafa stuðlað að auknum áhuga á afrískri menningu. Úr þessu öfluga, skapandi og fjölbreytta samstarfi varð til félagið „Afríka Lole“, sem Cheick Bangoura stofnaði til að efla enn frekar menningartengsl.
 
Cheick Bangoura hefur tekið virkan þátt í tónlistarlífinu á Íslandi, spilað með Stuðmönnum, Big bandi Samma og Amabadama.
Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrar.
 
Nánari upplýsingar:
Dagsetning: 23. apríl
Tímasetning: 14:00
Staðsetning: Ketilhúsið, Listasafninu á Akureyri
Aðgangseyrir: Enginn aðgangseyrir