Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn

Sunnudaginn 29. október kl. 11-12 mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segja börnum og fullorðnum frá yfirlitssýningu á verkum Drafnar Friðfinnssonar, Töfrasproti tréristunnar. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýningarinnar.

Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir fræðslustarf Listasafnsins.