Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn

Sunnudaginn 27. september kl. 11-12 mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar, segja börnum og fullorðnum frá þremur sýningum; Í snertingu, Hversdagsland og Hughrif - litir - form II. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýninganna.
 
Tilvalið tækifæri fyrir alla fjölskylduna til að fræðast um sýningarnar, skapa saman listaverk og eiga góða stund í Listasafninu. Öll velkomin!
 
*Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.