Franska kvikmyndahátíðin 2026 - Souleymane’s Story

Velkomin á Frönsku kvikmyndahátíðina á Akureyri 2026. Hátíðin fer fram víða um bæ dagana 10.–15. febrúar. Í Listasafninu á Akureyri verður sýnd kvikmyndin Souleymane’s Story eftir Boris Lojkine. Sýningin fer fram sunnudaginn 15. febrúar kl. 15 á 4. hæð safnsins.
 
Matar­sendingahjólreiðamaður í París og hælisleitandi að nafni Souleymane hefur tvo daga til að undirbúa frásögn sína fyrir úrslita­viðtal sem ræður því hvort hann fær löglega búsetu í Frakklandi. 
 
Souleymane´s Story var val menntaskólanema á Frönsku Kvikmyndahátíðinni í ár. Myndin er með frönsku tali og enskum texta. Aðalhlutverk: Abou Sangare, Nina Meurisse, Alpha Oumar Sow.
 
Verið öll velkomin í notalega stund á Listasafninu. Enginn aðgangseyrir.