Flýtilyklar
Listasafnið óskar eftir listmunum
07.05.2025
Listasafnið á Akureyri opnar yfirlitssýningu á verkum Margrétar Jónsdóttur, leirlistakonu, þann 5. júní næstkomandi, en hún fagnar 40 ára starfsafmæli um þessar mundir. Á sýningunni verða sýndir fjölbreyttir listmunir frá ferli Margrétar og óskar Listasafnið eftir samstarfi við almenning um lán á einstaka munum. Þeir mega vera af öllum stærðum og gerðum, jafnvel slitnir og skörðóttir af langri notkun ef svo ber undir. Munirnir verða settir saman í eina innsetningu og er ætlað að spanna tímabilið frá upphafi ferilsins til dagsins í dag.
Tekið verður við munum í móttöku Listasafnsins á opnunartíma kl. 12-17 til og með 25. maí. Gerður verður lánssamningur við móttöku munanna. Sýningartími er 5. júní-28. september.
Margrét Jónsdóttir er fædd á Akureyri 1961. Hún nam leirlist í listiðnaðarskólanum í Kolding, en snéri heim að námi loknu 1985 og stofnaði sitt eigið leirverkstæði í bílskúrnum hjá ömmu sinni. Í rúm 20 ár hefur hún haft vinnustofu í Gránufélagsgötu 48 á Akureyri, þar sem hún vinnur að listinni og selur eigin verk.
Viðfangsefni Margrétar hafa verið margvísleg í gegnum tíðina og hún unnið jöfnum höndum að gerð nytjalistar, stærri listmuna og listskreytinga. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis.
Leit

