Ólafur Sveinsson myndlistarmaður veitir lifandi innsýn í skapandi feril

Hvernig verður listamaður til?
Hvað mótar myndmálið, hugmyndirnar og þrána til að skapa – ár eftir ár?
 
Þriðjudaginn 3. mars kl. 16:15 mun myndlistarmaðurinn Ólafur Sveinsson leiða fyrirlestur í Listasafninu á Akureyri. Verið öll velkomin. Aðgangur er ókeypis. 
 
Ólafur (f. 1964) stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri, þar sem hann útskrifaðist frá málunardeild, og dvaldi jafnframt við nám í Lahti í Finnlandi. Síðar lauk hann kennslufræði við Háskólann á Akureyri og öðlaðist kennararéttindi. Auk listsköpunar hefur hann starfað sem svæðisleiðsögumaður og þannig tengt saman list, frásögn og staðaranda í víðara samhengi.
 
Á löngum og fjölbreyttum ferli hefur Ólafur haldið tugi einka- og samsýninga, bæði hérlendis og erlendis, og tekið þátt í öflugu sýningarstarfi víða um land, ekki síst á hér á Norðurlandi. Verk hans hafa einnig verið sýnd í Danmörku og víðar á Norðurlöndum, auk þess sem þau eru í eigu fjölmargra opinberra aðila og safna, bæði á Íslandi og erlendis. Hann hefur hlotið margvíslega styrki til listsköpunar sinnar og sýningarhalds. 
 
Í fyrirlestrinum mun Ólafur fara yfir þetta viðburðaríka lífshlaup í myndlistinni. Hann mun segja frá upphafi sínu í námi, þróun myndmáls og hugðarefna, og rifja upp valdar sýningar og verk sem markað hafa spor í ferlinum. Þá mun hann einnig koma inn á áhrifavalda á sinni leið, kynni af öðrum listamönnum og þær hugmyndir og skoðanir sem hafa mótað hann – bæði sem listamann og mann. Fyrirlesturinn verður þannig persónuleg og lifandi innsýn í skapandi ferli sem spannar áratugi.
 
Fyrirlestrar á næstunni:
  • 10. mars - Eva Björk Káradóttir listfræðingur og safnstjóri - Hvernig listsýningar má finna í hvalasafni?
  • 17. mars - Myndlistarfélagið á Akureyri - Meðlimir kynna samstarf við myndlistarfélagið í Þórshöfn í Færeyjum. 
  • 24. mars - Hildigunnur Birgisdóttir myndlistarmaður - Þátttaka í Feneyjartvíæringnum fyrir Íslands hönd.