Flýtilyklar
Sköpun bernskunnar 2026 - opnun 28. febrúar
Opnun sýningarinnar Sköpun bernskunnar fer fram í Ketilhúsi laugardaginn 28. febrúar kl. 15:00. Þetta er í þrettánda sinn sem sýningin Sköpun bernskunnar er sett upp í Listasafninu á Akureyri.
Markmiðið með sýningunni er að efla safnfræðslu og gera sýnilegt og örva skapandi starf barna á aldrinum fimm til sextán ára. Þátttakendur hverju sinni eru skólabörn og starfandi myndlistarmenn ásamt Minjasafninu á Akureyri / Leikfangahúsinu.
Í ár var myndlistarkonunni Sunnu Svavarsdóttir boðin þátttaka í verkefninu. Í verkum sínum opnar Sunna á samtal um hvernig við röltum í gegnum veröldina með skynfærum okkar. Hún beinir athyglinni að upplifun á áveðnum augnablikum sem er að mestu skynjun snertingar og lyktar. Forvitnin við að finna leiðir til að lengja þessi augnablik er oftast upphafspunktur verka hennar.
Skólarnir sem taka þátt að þessu sinni eru leikskólinn Tröllaborgir, grunnskólarnir Brekkuskóli, Glerárskóli, Naustaskóli og Oddeyrarskóli. Í vetur komu skólabörnin í Listasafnið og unnu verk sín fyrir sýninguna undir handleiðslu listamannsins. Þar fengu þau tækifæri til að kynnast Sunnu og skapa eigin verk, innblásin af verkum hennar.
Sýningarstjóri: Heiða Björk Vilhjálmsdóttir
Leit