Opnun þriggja sýninga laugardaginn 26. september

Þrjár sýningar verða opnaðar í Listasafninu á Akureyri laugardaginn 26. september kl. 15:00. Verið öll hjartanlega velkomin. 

1/3 söngskemmtun, saumur, ló og þvottaleiðbeiningar
Salur 01 (á 4. hæð) 
 
Berglind Jóna Hlynsdóttir (f. 1979) lauk BA-námi í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2006 og MA frá Valand-listaháskólanum í Svíþjóð 2010. Hún stundar nú doktorsnám í listrannsóknum innan samstarfsverkefnis LHÍ, HÍ og Listasafns Íslands. Berglind hefur tekið þátt í samsýningum og samstarfsverkefnum víða um heim og einnig haldið allmargar einkasýningar.
Berglind hefur þróað aðferð við listsköpun sem felur í sér að draga fram tiltekna, falda þætti fyrirbæra, eins og staða, bygginga og hluta. Það felur í sér að hugsa um listaverk og rannsóknir sem ryksugur sem sjúga upp og móta það sem hún kallar skuggaefni.
Í þessu verki býr hún til skuggaefnisryksugu með því að nota listaverkið Söngskemmtun eftir Þorvald Þorsteinsson (1998); safnar brotum, söguþráðum og örsögum frá framleiðslu þess, sem og leifum og ummerkjum sem safnast hafa upp frá ferðalögum þess og geymslu. Það er í broti augnabliks utan atburðar sem hún upplifði ekki sem Berglind byrjar að safna efninu sem dvelur í skugga þessa listaverks.
 
Í skugga átaka
Salir 10 11 (Ketilhús)
 

Rússneska innrásin í Úkraínu 24. febrúar 2022 markaði upphaf mikilla áfalla fyrir Evrópu. Á þessari sýningu eru stríðsátök skoðuð með augum listamanna frá ólíkum löndum, þar sem listin verður vettvangur fyrir reynslu, minningar og tilfinningar sem mótast í skugga átaka.

Verkin draga fram sársauka, ótta og þrá eftir friði, en sýna einnig hvernig stríð getur bæði sundrað og sameinað. Úkraínskir listamenn miðla sögum af sársauka, von og seiglu, á meðan íslenskir listamenn endurspegla flestir aðra upplifun. Frönsk og dönsk verk kalla fram minningar sem geta jafnframt byggst á eldri hljóðbrotum, hollenskt verk tengir fortíð og nútíð og litháískur listamaður speglar líf við stöðuga ógn handan landamæra. Saman komin sýna verkin okkur hvernig list getur endurspeglað, unnið úr og mótmælt stríði.

Sýningin er áminning um brothættan frið og opnar rými fyrir samtal, samstöðu og samkennd, en einnig fyrir sameiginlega ábyrgð á sögu okkar allra.

Sýningarstjórar: Sigríður Örvarsdóttir og Daría Testo

Svartur blettur
Salur 06 (4. hæð)
 

Logi Bjarnason (f. 1978) lauk BA-námi frá Listaháskóla Íslands 2008 og MA-námi frá Städelschule í Þýskalandi 2012. Hann hefur sýnt verk sín við ýmis tækifæri, bæði á Íslandi og erlendis, og hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir myndlist sína.

Í listsköpun sinni fjallar hann um náttúru Íslands á óhlutbundinn hátt, ásamt því að flétta saman samfélagstengda þætti. Verk hans eru unnin í ýmsa miðla, ýmist tvívíð eða þrívíð, jafnvel hvort tveggja. 

Verkið á svölunum setur fram nýja nálgun á skúlptúr þar sem mörk skynjunar og víddar færast til. Skúlptúrinn er hluti af seríu stórra svartra steina, þar sem óhlutbundið formið vísar í ádeilu á samtíma okkar með sterka skírskotun í ástand heimsins á tímum stríðsátaka, þar sem getuleysi Vesturlanda gagnvart stríði í heiminum er algjört.

Hið angurværa svartnætti sem umlykur okkur virkar sem aðdráttarafl sem kallar á samveru og um leið er það líka könnun á lífsgæðum og rými.