Flýtilyklar
Þriðjudagsfyrirlestur - Hvalir og eftirminnileg sýningargerð
Eva Björk hefur í átta ár leitt uppbyggingu Hvalasafnsins og mótað sýningar sem tengja saman vísindi, menningu og náttúru – allt með hvali í forgrunni.
Í þriðjudagsfyrirlestri sem fer fram í Listasafninu á Akureyri þann 10. mars næstkomandi mun Eva Björk veita innsýn í heim sýningagerðar í sérhæfðu safni. Hún fjallar um hugmyndavinnu, ákvarðanatöku og skapandi lausnir í uppbyggingu sýninga þar sem saga, vísindi og menning hvala móta efnistök og framsetningu.
Í fyrirlestrinum verður einnig sjónum beint að listrænni nálgun í Hvalasafninu, með aðkomu myndlistarmanna við miðlun vísinda, lista og menningar í sýningagerðinni. Auk þess mun Eva Björk fjalla um sköpun og þróun sýningarrýmis fyrir myndlist innan safnsins og velta upp spurningunni: Hvers konar myndlist á heima í hvalasafni?
Verið öll hjartanlega velkomin. Aðgangur er ókeypis.
Leit