Þriðjudagsfyrirlestur: Nicola van Kuilenburg

Þriðjudaginn 24. febrúar kl. 16:15, heldur Nicola van Kuilenburg, nemandi í þjóðfræði og safnafræði við Háskóla Íslands, þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er aðgangur ókeypis.
 
Nicola van Kuilenburg hefur starfað hjá Menningarmiðstöð Þingeyinga frá árinu 2023. Í fyrirlestrinum verða kynntar tvær sýningar, Út úr skuggunum og Bakslag, sem Nicola vann að í tengslum við Hinsegin Hátíð 2025 og voru sýndar í Safnahúsinu á Húsavík sumarið 2025.
Út úr skuggunum fjallar um þróun sýnileika hinsegin fólks í Þingeyjarsýslu. Þar eru dregnar fram staðbundnar sögur sem áður höfðu ekki átt sér stað í safninu né í opinberri frásögn af hinsegin samfélaginu á Norð­austurlandi. Sýningin hefst á skrásettri ævi Guðmundar Sigurjónssonar Hofdal, íþróttamanns frá Mývatnssveit sem var dæmdur í fangelsi árið 1924 fyrir kynferðislegt samband við karla með samþykki beggja aðila, og leiðir gesti áfram í átt að síðari tímamótum opinberrar viðurkenningar, svo sem hjúskaparlögum sem tryggja jafnan rétt til hjónabands.
Bakslag beinir sjónum að samtímanum og er viðbragð við aukinni andúð í garð hinsegin fólks, bæði á alþjóðavísu og hér á landi. Í sýningunni er skoðað hvernig tungumál, tákn og opinber umræða móta daglegt líf hinsegin samfélagsins.
 
Í fyrirlestrinum er einnig fjallað um hvernig mótun beggja sýninga byggðist á hagnýtum sýningarstjórnarlegum ákvörðunum, þar sem reynsla hinsegin fólks var sett í öndvegi og miðað var við breiðan hóp almennra gesta.
//
On Tuesday, February 24 at 4:15 PM, Nicola van Kuilenburg, a student in Folklore and Museum Studies at the University of Iceland, will give a Tuesday lecture at the Akureyri Art Museum. The lecture will be held in English and admission is free.
 
Nicola van Kuilenburg, a student in the Folklore and Museum Studies programs at the University of Iceland. She has worked at Menningarmiðstöð Þingeyinga since 2023. The lecture introduces two exhibitions, Út úr skuggunum and Bakslag, developed by Nicola as part of Hinsegin Hátíð 2025 and shown at Safnahúsið Húsavík in the summer of 2025.
Út úr skuggunum examines the development of LGBTQ+ visibility in Þingeyjarsýsla. It brings forward local stories that were previously absent from the museum and from the public narrative of the queer community in Northeast Iceland. The exhibition begins with the documented life of Guðmundur Sigurjónsson Hofdal, an athlete from the Mývatn area who was imprisoned in 1924 for consensual sex with men, and moves toward later moments of public recognition such as marriage equality. 
Bakslag focuses on the present and responds to increased hostility toward LGBTQ+ people, both internationally and in Iceland, examining how language, symbols, and public discourse shape everyday life for the community.
The lecture explains how both exhibitions were shaped through practical curatorial decisions, with queer experiences placed at the center, and designed for a general public audience.