Tólf tóna korter 3. október

Laugardaginn 3. október kl. 15 og 16

Mæðgurnar Margrét Árnadóttir og Erla Mist Guðmundsdóttir koma saman á Listasafninu á Akureyri laugardaginn 3. október og flytja stutta tónleikadagskrá innan tónleikaraðarinnar Tólf tóna korter.

Tónleikarnir hefjast kl. 15:00 og verða endurteknir kl. 16:00. Á efnisskránni eru þrjú verk, þar af eitt sem verður frumflutt:

  • Mater et Filia eftir Daníel Þorsteinsson – frumflutningur
  • Erla eftir Sigvalda Kaldalóns, við ljóð Stefáns frá Hvítadal
  • Frostrósir eftir Freymóð Jóhannsson

Aðgangur er ókeypis, aðgengi er gott og öll eru hjartanlega velkomin – ung, gömul og öll þar á milli.

Gestir TÓLF TÓNA KORTÉRSINS geta jafnframt nýtt tækifærið til að skoða sýningar Listasafnsins og fengið sér eitthvað gott í svanginn á Ketilkaffi.

Njótum laugardagsins á listasafninu okkar!

TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands Eystra og Menningarsjóði Akureyrarbæjar. Bestu þakkir fyrir stuðninginn!