Flýtilyklar
Tólf tóna kortérið - Andrea Gylfadóttir
07.04.2026
Hin eina sanna Andrea Gylfadóttir – söngkona, lagasmiður og skáld – leiðir Tólf tóna korterið í Listasafninu á Akureyri laugardaginn 11. apríl kl. 15:00 og aftur kl. 16:00.
Andrea semur og spinnur á selló, gítar og fiðlu yfir drón og tónmynstur leikin af sellóaðstoðarkonu og forsprakka TÓLF TÓNA KORTÉRSINS, Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur.
Tónleikarnir eru 15 mínútur að lengd. Verið öll hjartanlega velkomin. Enginn aðgangseyrir.
Sóknaráætlun Norðurlands Eystra og Menningarsjóður Akureyrarbæjar styrkja TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ.
Leit