Flýtilyklar
Villi varpar nýju ljósi á listina
06.11.2026
Laugardaginn 14. nóvember kl. 14:00 býður Listasafnið á Akureyri upp á óvenjulega og skemmtilega leiðsögn um safnið í fylgd Vilhjálms Bragasonar leikara, tónlistarmanns og höfundar.
Vilhjálmur nálgast sýningarnar á sinn einstaka hátt og býður gestum með sér í ferðalag þar sem fróðleikur, vangaveltur og húmor fá að njóta sín. Hér er ekki endilega um hefðbundna leiðsögn að ræða, heldur tækifæri til að upplifa listina frá nýju sjónarhorni, koma auga á hið óvænta og jafnvel hafa svolítið gaman af því sem fyrir augu ber.
Leiðsögnin hefst kl. 14:00 og er opin öllum. Aðgangur er innifalinn í aðgangseyri safnsins.
Leit