Flýtilyklar
WindWorks með tvenna tónleika í safninu
07.08.2026
Alþjóðlega tónlistarhátíðin WindWorks í Norðri 2026 verður haldin í fimmta sinn næstu dagana. Fyrstu tónleikar hátíðarinnar fara fram hér í Listasafninu á Akureyri dag föstudag kl. 15 í sal 12 á 2. hæð safnsins.
Þar koma fram Gillian Haworth óbóleikari og Ármann Helgason klarinettuleikari. Þau flytja verk eftir innlend og erlend tónskáld og meðal annars verður frumflutt verk eftir Harald Vigni Sveinbjörnsson, Sospiri fyrir óbó og klarinett.
„Sospiri (Andvörp) er dúó fyrir óbó og klarinett í fimm stuttum þáttum. Tvær raddir fléttast saman í fíngerðu samtali þar sem þær ýmist renna saman í sameiginlegan hljóm eða takast á í lifandi tónlistarlegum orðaskiptum. Flæðið er óþvingað og lífrænt, líkt og andardráttur sem kemur af sjálfu sér,“ segir í tónaleikadagskrá.
Seinni tónleikarnir sem haldnir verða í Listasafninu fara fram 13. ágúst kl. 15. Nánari upplýsingar um þá verða birtar síðar.
Verið öll hjartanlega velkomin
Leit