
Opið er fyrir umsóknir vegna A! Gjörningahátíðar. Umsóknir sendist á netfangið a@listak.is fyrir 1. apríl.
(English below)
A! Gjörningahátíð fer fram á Akureyri 8.-11. október næstkomandi. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega, nú í tólfta sinn, og er ókeypis inn á alla viðburði.
Hátíðin breytir Akureyri árlega í suðupott spennandi listviðburða og er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Gilfélagsins, Myndlistarfélagsins á Akureyri og Listnámsbrautar VMA.
Fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga eru á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum, dans- og leikhúsfólki. Á meðal þeirra sem komið hafa fram eru Sigurður Guðmundsson, Gjörningaklúbburinn, Dustin Harvey, Rúrí, Theatre Replacement, Katrín Gunnarsdóttir, Tricycle Trauma, Curver Thoroddsen, Brák Jónsdóttir, Tales Frey, Anna Richardsdóttir, Kuluk Helms, Harpa Arnardóttir, Snorri Ásmundsson, Florence Lam, Olya Kroytor og Dýrfinna Benita Basalan.
Á hverju ári breytir hátíðin Akureyri í suðupott spennandi gjörninga. Ókeypis er inn á alla viðburði.
Verkefnisstjóri: Sara Bjarnason
//
Applications for the festival are now open at the email address a@listak.is.
A! is a four-day international performance art festival held annually. The festival is a collaborative project between the Akureyri Art Museum, the Akureyri Theatre Company, Hof Cultural Centre of Akureyri, the Gil Society, the Art Department of Akureyri Comprehensive College (VMA) and the Akureyri Visual Arts Society, with events held in the town's various cultural venues.
A! is a unique festival dedicated exclusively to performance art. The program features a wide variety of performances and theatre-related works of all kinds. Participants include young and up-and-coming artists, alongside experienced and well known performance artists, dancers, and theatre professionals, from both Iceland and abroad.
Every year, the festival transforms Akureyri into a melting pot of exciting events.
Admission to all events is free.