Viðburðir helgina 18.-19. apríl

Fjölskyldujóga í Listasafninu
18. apríl 2026
Kl. 11-12

Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir leiðir hugljúfa og skemmtilega fjölskyldujógastund í Listasafninu á Akureyri. Þátttakendur kyrra hugann, æfa öndun og jógastöður. Jafnframt verður farið í hreyfitengda leiki og slakað vel á í lokin. Öll velkomin!

Arnbjörg Kristín hefur leitt fjölskyldujóga á Barnamenningarhátíð undanfarin ár, bæði í Reykjavík og á Akureyri. 

*Ekkert þátttökugjald en takmarkaður fjöldi þátttakenda og skráning nauðsynleg á netfangið heida@listak.is

 Verkefnið er styrkt af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar.

Laugardagsleiðsögn
18. apríl 2026
kl. 15

Laugardaginn 18. apríl kl. 15 mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar, leiða gesti um sýningarnar Saga Íslands: 2. hluti, Guð launi þér og Hughrif - litir - form I. Í jákvæðu og skapandi umhverfi fá gestir tækifæri til að upplifa list með lifandi hætti, dýpka skilning sinn og tengja saman fortíð og nútíð í áhugaverðri leiðsögn um sýningarnar þrjár. 

Aðgangur innifalinn í miðaverði.
 

Fjölskylduleiðsögn & listsmiðja á Barnamenningarhátíð
19. apríl 2026
Kl. 11 – 12

Sunnudaginn 19. apríl kl. 11-12 mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar, segja börnum og fullorðnum frá sýningunum Saga Íslands II. hluti: Eiríkur Páll SveinssonGuð launi þér og Hughrif - litir - form IAð lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýninganna. 

 *Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.