Fjölskylduleiðsögn og listsmiðja á sunnudaginn

Fjölskylduleiðsögn & listsmiðja sunnudaginn 22. febrúar kl. 11-12.
 
Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fræðslu og miðlunar, segir börnum og fullorðnum frá verkum Guðmundar Ármanns á sýningunni Aðflæði og innsetningu Bjarkar Viggósdóttur, Hreyfing fyrir sjón. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýninganna.
 
*Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.