Flýtilyklar
Menningarsúpan fer aftur af stað!
15.09.2026
Nú tökum við aftur upp þráðinn með Menningarsúpuna, óformlegan mánaðarlegan hitting fyrir fólk sem hefur áhuga á menningu og menningarlífi á Akureyri og í nágrenni.
Menningarsúpan er vettvangur til að hittast, kynnast, spjalla og deila hugmyndum, hvort sem þú starfar við menningu, ert listamaður, skipuleggur viðburði, ert þátttakandi í menningarlífinu eða hefur einfaldlega áhuga á því sem er að gerast.
Við ræðum það sem er á döfinni, deilum hugmyndum og reynslu, kynnumst því sem aðrir eru að gera og spáum í hvernig við getum styrkt og auðgað menningarlífið á svæðinu.
Fyrsta súpan eftir hlé fer fram mánudaginn 28. september kl. 12-13 á Ketilkaffi. Þar munu fulltrúar frá SSNE kynna menningarstarfið sem framundan er þar á bæ.
Engin formleg dagskrá að öðru leyti - bara gott fólk, samtal og súpa frá þeim á Ketilkaffi! Endilega skráið ykkur á Facebook-viðburðinn hér svo starfsfólk Ketilkaffis hafi sem gleggsta hugmynd um fjöldann sem ætlar að fá sér súpudisk 
Öll áhugasöm eru hjartanlega velkomin!
Leit