Sumardagurinn fyrsti í Listasafninu

Það verður heldur betur fjör í safninu á sumardaginn fyrsta.  

Ýmislegt alls konar - Opin smiðja fyrir fjölskyldur í Listasafninu
Klukkan 12-15

Boðið verður upp á opna listsmiðju fyrir fjölskyldur í Listasafninu á Akureyri. Alls konar efniviður verður á staðnum og öll velkomin. Tilvalið tækifæri fyrir fjölskyldur að skapa sitt eigið listaverk og njóta samverunnar.

Dillandi afrísk dans- og trommugleði fyrir alla fjölskylduna
Klukkan 14. 

Verið velkomin á dillandi afríska dans- og trommugleði fyrir alla fjölskylduna í Ketilhúsi á sumardaginn fyrsta.
 
FAR Fest Afríka á Íslandi var stofnuð árið 2009 af hjónunum Cheick Bangoura og Kristínu Álfheiði Árnadóttur frá Akureyri. Síðan þá hefur menningarhátíðin FAR Fest Afríka verið haldin árlega. Í tengslum við hátíðina hefur verið boðið upp á fjölbreytta viðburði, námskeið og fræðslu sem hafa stuðlað að auknum áhuga á afrískri menningu. Úr þessu öfluga, skapandi og fjölbreytta samstarfi varð til félagið „Afríka Lole“, sem Cheick Bangoura stofnaði til að efla enn frekar menningartengsl.
 
Cheick Bangoura hefur tekið virkan þátt í tónlistarlífinu á Íslandi, spilað með Stuðmönnum, Big bandi Samma og Amabadama.
Viðburðurinn er styrktur af Barnamenningarsjóði Akureyrar.

Viðburðurinn er styrkur af Barnamenningarsjóði Akureyrarbæjar. 

Enginn aðgangseyrir.