Tólf tóna korter - Hjörleifur

TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ
 
Verið öll hjartanlega velkomin á kortérslanga tónleika í Listasafninu á Akureyri laugardaginn 7. nóvember kl. 15:00 og 16:00.
 
Að þessu sinni frumflytur Hjörleifur Örn Jónsson tónverkið 7,83 fyrir slagverk og rafhljóð, sem hann hefur samið sjálfur.
Hjörleifur hefur leikið ýmsa tónlist með ýmsu fólki, á ýmsum stöðum og á ýmsum tímum. Hann býr og starfar sem tónlistarmaður og tónlistarskólastjóri á Akureyri.
 
Aðgangur ókeypis.
 
Að tónleikunum loknum (eða fyrir þá!) er tilvalið að skoða sýningar safnsins og staldra við á Ketilkaffi. Góður laugardagur í Listasafninu!
 
TÓLF TÓNA KORTÉRIÐ er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra og Menningarsjóði Akureyrarbæjar.