Saga Íslands: 2. hluti - Eiríkur Páll Sveinsson


OPEN
SAGA ÍSLANDS: 2. HLUTI - EIRÍKUR PÁLL SVEINSSON
28.03.2026 – 16.08.2026
Salur 08

Eiríkur Páll Sveinsson háls-, nef- og eyrnalæknir reyndi að hafa yfirsýn yfir framgang lífsins og heimsins, m.a. með því að prenta út internetið í árdaga þess. Til þess að forða upplýsingum frá glötun safnaði hann þeim saman, prentaði út og lét gorma. Hann reyndi að hafa samræmi í innihaldi hverrar gormabókar eða hvers heftis. Viðmiðið var 100 síður í hvern gorm. Efnið er ekki endilega í tímaröð og hann skaut oft inn myndum, ljóðum og bréfum til að fylla upp í síðurnar 100.

Eftir Eirík liggja 178 hefti, hvert þeirra hefur sína eigin forsíðu og í þeim kennir ýmissa grasa. Eiríkur tók saman dagbækur sínar frá unga aldri, skrifaði um eiginkonu sína (R), börnin, barnabörnin, barnabarnabörnin, ólympíuleika (ÓL), mynni Vaðlaheiðarganganna (VHM). Einn flokk hefta kallaði Eiríkur ævistiklur. Þar má m.a. finna, skýrslur um kartöflur og útsæði, bréf til vina og vandamanna, stíla síðan hann var í menntaskóla, kúrfur úr vaxtarrækt frá 2005–2007, ljósmyndir af framkvæmdum, skýrslur um flutninga, eigin veðurathuganir, íþróttaafrek barnabarna og vöxt trjáa.

Eiríkur skrifaði þessa hugleiðingu í eitt heftið:

„Þar sem ég hef gaman af skráningu og hef nægan tíma, læt ég þetta bara verða til í huganum og set það svo hér á blöðin. Sennilega á enginn eftir að lesa þetta yfir, nema ég sjálfur. Vellíðanin við þessi skrif er fyrir öllu.“

Open hefur unnið þessa sýningu með góðfúslegu leyfi fjölskyldunnar í samstarfi við hönnuðinn Evu Árnadóttur sem er eitt barnabarna Eiríks. Við þökkum þeim kærlega samstarfið 

Í tilefni sýningarinnar bauð Open nokkrum aðilum að gera sínar eigin forsíður að mögulegum heftum. Höfundar forsíðna eru: 

Pálína Guðmundsdóttir, Joris Rademaker, Arna Valsdóttir, Hlynur Hallsson, Flóra Menningarhús, Kaktus, Anna Richardsdóttir, Kristinn G. Harðarson, Sölvi Halldórsson, Logi Leó Gunnarsson, Norræna húsið, Markús Þór Andrésson, Ólöf Bóadóttir, Ófeigur Sigurðsson, Saga Líf Sigþórsdóttir, Lóa Björk Björnsdóttir, Frímúrararnir á Akureyri, Unnar Örn J. Auðarson, Bjarki Bragason, Nermine Al Ansari, Helga Dögg, Lani Yamamoto, og Hlökk Þrastardóttir.

Þá báðum við Björgu Eiríksdóttur myndlistarmann um að gera tvö hefti undir áhrifum föður síns.