ÚLFUR LOGASON

ÚLFUR LOGASON
GUÐ LAUNI ÞÉR
28.03.2026 – 16.08.2026
Salur 09 

Úlfur Logason (f. 1997) lærði málaralist í Kúnstakademíunni í Düsseldorf í Þýskalandi og útskrifaðist þaðan 2024. Hann býr nú og starfar í Berlín. Þetta er fyrsta einkasýning Úlfs á opinberu safni, en hann hefur tekið þátt í sýningum bæði á Íslandi og erlendis, þar á meðal í Düsseldorf, New York og París. 

Í málverkum og teikningum Úlfs kannar hann evrópska listasögu, sérstaklega sögumálverkið, og notar hana til að túlka eigið umhverfi og samtímann. Titill sýningarinnar, Guð launi þér, tekur hann úr teikningu eftir Francisco Goya, þar sem sjá má naut stanga götusöngvara, líklega til dauða. Verk Goya eru einn af útgangspunktum þessarar sýningar og þá sérstaklega pappírsverk hans, þar sem frásögnum af spænskum hversdegi, kaldranalegum húmor, furðulegum allegoríum og sjokkerandi lýsingum á hernaði, morðingjum, mannáti og djöfladýrkun ægir saman. Vatnslitamyndirnar á sýningunni eru tilraun Úlfs til að sameina fjölbreyttar frásagnir úr ýmsum áttum í einn myndheim.