
VALIN VERK FYRIR SKÖPUN OG FRÆÐSLU
HUGHRIF
28.03.2026 – 16.08.2026
29.08.2026-07.03.2027
Gallery 08
Með því að skoða liti og form má læra margt um myndlist. Þegar formum er raðað á myndflöt eða í skúlptúr verður listaverk til. Form geta bæði verið tvívíð og þrívíð, lífræn eða geometrísk og haft ólíka liti og áferð. Litir eru gjarnan notaðir til að vekja tilfinningar og skapa stemningu í listaverkum. Þá má einnig nota sem tákn, en misjafnt er hvaða merkingu fólk leggur í liti og þar spilar bakgrunnur stórt hlutverk auk samhengis og menningar.
Markmið sýningarinnar er að fá safngesti til að velta fyrir sér merkingu lita og forma í myndlist, út frá völdum verkum úr safneign Listasafnsins.
Verkin eru fjölbreytt og unnin með ólíkum efnum og aðferðum. Safngestum er einnig boðið að taka þátt í sýningunni með því að skapa eigin verk innblásin af verkum sýningarinnar.
Sýningarstjóri: Heiða Björk Vilhjálmsdóttir.