SÝNING UM HEILAGAN FUGL

ÖRLYGUR KRISTINSSON
SÝNING UM HEILAGAN FUGL
16.05.2026-06.09.2026
Salur / Gallery 01

Örlygur Kristfinnsson fæddist á Siglufirði 1949. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1969–73 og stundaði lengi málverkið, en hefur unnið með vatnsliti í seinni tíð og á að baki allmargar sýningar. Örlygur var forstöðumaður og sýningahönnuður hjá Síldarminjasafni Íslands í aldarfjórðung. Auk myndlistar hefur hann lagt stund á endurgerð gamalla húsa og skrifað bækur sem fjalla um mannlíf á síldarárunum.

Sýning Örlygs er tileinkuð geirfuglinum og samanstendur af vatnslitamyndum, leirverkum og innsetningum með fjörugripum. Þar birtist geirfuglinn sem táknmynd fyrir óteljandi lífverur, stórar og smáar, sem eru í útrýmingarhættu.

Geirfuglinn var algengur við Norður-Atlantshaf, ófleygur og auðveld bráð. Með landnámi Evrópumanna í Norður-Ameríku var fuglinum slátrað af miklu miskunnarleysi. Síðustu geirfuglar á jörðinni voru drepnir í Eldey við suðvesturströnd Íslands 3. júní 1844, í þágu kaupmanna og náttúrugripasafnara. Æ síðan hefur samviskubits gætt í þjóðarsál Íslendinga. Aldauði fuglsins leiddi til umræðu og aðgerða til varna fyrir viðkvæmar fuglategundir og því má líta á hann sem fyrirmynd náttúruverndar.