ZIMOUN

ZIMOUN
ZIMOUN
04.06.2026-06.09.2026
Salur / Gallery 10 11

Svissneski listamaðurinn Zimoun (f.1977) skapar staðbundnar hljóðinnsetningar og skúlptúra sem að megninu til eru gerðar úr endurunnu efni úr daglegu lífi og iðnaði. Í gegnum handgert vélrænt ferli virkjar hann þessi efni og lætur þau óma, sem umbreytir heilu rýmunum í lifandi umhverfi. Með krafsi, klóri, banki, titringi og öðrum núningi milli efna miðla þau fjölbreyttu þrívíðu hljóði.

Innsetningar hans tengjast ekki einungis náttúrunni heldur einnig einnota samfélagi okkar, sjálfvirku ferlunum, valdakerfinu sem umlykur okkur, iðnvæðingu og hinni framsæknu vélmennavæðingu heimsins. Þær snerta einnig á samfélagslegri gagnrýni, sem og heimspekilegum og sálfræðilegum þemum.

Innsetningarnar afhjúpa þétt og dáleiðandi andrúmsloft, oft með skynörvandi eiginleikum og sterkri nærveru, en þó einnig með dálitlum húmor og falinni kaldhæðni í óþreytandi þrautseigju og fáránleika. Þær gætu hreyft við okkur og virkjað til að skoða okkur sjálf og veröldina í kring.

Sýningin er hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2026.