Flýtilyklar
Opin gestavinnustofa – Lise Nymark
Á Akureyrarvöku, laugardaginn 29. ágúst kl. 19 býður norska listakonan Lise Nymark gestum að kíkja inn í gestavinnustofu Listasafnsins á Akureyri.
Nymark hefur dvalið síðastliðinn mánuð í gestavinnustofu safnsins þar sem hún hefur unnið að verkum sem kanna samspil hreyfimynda, efnis og rýmis. Hún vinnur meðal annars með vídeóverk sem varpað er á ólíkan efnivið, svo sem pappír og textíl, og raðað upp í þrívíddarform sem skapa rými þar sem mynd, efni og hreyfing fléttast saman.
Í nýlegum verkum hefur Nymark einnig unnið með hljóð, í samstarfi við norska slagverksleikarann Kristoffer Maximus Åsgård. Hljóð verða því einnig hluti af þeim verkum sem hún hefur þróað á meðan á dvölinni hér stendur.
Gestir og vegfarendur eru hjartanlega velkomnir að líta við og sjá hvað hefur verið að gerast í vinnustofunni.
Leit