LOGI BJARNASON
SVARTUR BLETTUR
26.09.2026-10.01.2026
Salur / Gallery 06

Logi Bjarnason (f. 1978) lauk BA-námi frá Listaháskóla Íslands 2008 og MA-námi frá Städelschule í Þýskalandi 2012. Hann hefur sýnt verk sín við ýmis tækifæri, bæði á Íslandi og erlendis, og hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir myndlist sína.
Í listsköpun sinni fjallar hann um náttúru Íslands á óhlutbundinn hátt, ásamt því að flétta saman samfélagstengda þætti. Verk hans eru unnin í ýmsa miðla, ýmist tvívíð eða þrívíð, jafnvel hvort tveggja.
Verkið á svölunum setur fram nýja nálgun á skúlptúr þar sem mörk skynjunar og víddar færast til. Skúlptúrinn er hluti af seríu stórra svartra steina, þar sem óhlutbundið formið vísar í ádeilu á samtíma okkar með sterka skírskotun í ástand heimsins á tímum stríðsátaka, þar sem getuleysi Vesturlanda gagnvart stríði í heiminum er algjört.
Hið angurværa svartnætti sem umlykur okkur virkar sem aðdráttarafl sem kallar á samveru og um leið er það líka könnun á lífsgæðum og rými.