S-I-L-I-C-A-0-3

HULDA RÓS GUÐNADÓTTIR
S-I-L-I-C-A-0-3
16.05.2026-06.09.2026
Salur / Gallery 02 03a

Hulda Rós Guðnadóttir (f. 1973) er starfandi myndlistarkona með menntun í mannfræði og gagnvirkri hönnun auk myndlistar. Hún býr og starfar í Berlín, hefur sýnt verk sín víða um heim og mótast starf hennar af virkri þátttöku í alþjóðlegu samtali samtímalistar. Í verkum sínum sameinar hún rannsóknarvinnu, myndræna framsetningu og gagnrýna samfélagsskoðun, þar sem aðferðir úr félagsvísindum móta myndræna niðurstöðu. Hulda hefur hlotið fjölda viðurkenninga, þar á meðal Guðmunduverðlaunin, viðurkenningu Guðmundusjóðs, árið 2019. 

Listsköpun Huldu beinist að tengslum alþjóðlegrar iðnvæðingar og staðbundinna samfélaga, með áherslu á áhrif auðlindavinnslu og spurninga um ávinning, ábyrgð og langtímaáhrif. Má greina skýra tengingu við strauma í samtímalist þar sem áhersla er lögð á efnislega tilvist og virkni efnanna sjálfra við framsetningu.

Í verkum sýningarinnar fjallar Hulda um samspil náttúruauðlinda, vistkerfa, efnahags og valds. Hún vinnur með efni er snerta starfsemi kísilverksmiðju PCC á Bakka við Húsavík og umbreytir þeim í vettvang gagnrýninnar íhugunar, annars vegar kísil sem verður til við bræðslu og hins vegar kolamola úr ofnum verksmiðjunnar. Efnið er ekki aðeins miðill heldur virkur þátttakandi í merkingarmyndun og í anda ný-efnishyggju verða eiginleikar þess og uppruni hluti af verkinu sjálfu.

Óhefðbundin leið er farin í efnisvali við gerð skúlptúranna sem settir eru fram beint á gólf salarins, sem undirstrikar efnislega nærveru þeirra. Efnin eru tekin úr upprunalegu samhengi og sett fram á nýjan hátt til að varpa ljósi á efnahagsleg og pólitísk tengsl – nálgun sem vísar til hefðar Arte Povera. Verkin opnast þannig bæði sem athugasemd við staðbundinn iðnað og sem hluti af víðara samtali innan samtímalistar, um efni, orku og umbreytingu.

Sýningin vekur spurningar um sjálfbærni og framtíðarsýn en undirstrikar einnig ákvarðanatöku sem fram fer fjarri afskekkta smábænum í norðri, þar sem vinnslan er þó sett upp og iðnaðurinn fer fram, og hvernig hún getur haft djúpstæð áhrif á framtíð fámenns samfélags.  

Sýningarstjóri: Sigríður Örvarsdóttir

Gerð verka voru styrkt af Myndlistarsjóði.