Fréttasafn

Georg Óskar.

Þriðjudagsfyrirlestur: Georg Óskar

Þriðjudaginn 24. október kl. 17-17.40 heldur myndlistarmaðurinn Georg Óskar Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Sögur og annar skáldskapur. Í fyrirlestrinum mun hann fjalla um hvernig málverkið hefur nýst honum til að rýna í heiminn og tjá sig um atburði líðandi stundar. Aðgangur er ókeypis.
Lesa meira
Leiðsögn á fimmtudaginn

Leiðsögn á fimmtudaginn

Fimmtudaginn 19. október kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu, Ketilhúsi um sýningar Rúrí, Jafnvægi-Úr Jafnvægi, og Friðgeirs Helgasonar, Stemning. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningarnar og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.
Lesa meira
Jonna (Jónborg Sigurðardóttir).

Þriðjudagsfyrirlestur: Jonna (Jónborg Sigurðardóttir)

Þriðjudaginn 17. október kl. 17-17.40 heldur myndlistarkonan Jonna (Jónborg Sigurðardóttir) Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Af hverju endurvinnslulist? Í fyrirlestrinum mun hún fjalla um hvernig endurnýting á rusli hefur verið henni efniviður í myndlist undanfarin misseri. Aðgangur er ókeypis.
Lesa meira
Fjölskylduleiðsögn á laugardaginn

Fjölskylduleiðsögn á laugardaginn

Laugardaginn 14. október kl. 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn í Listasafninu, Ketilhúsi. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningum Rúrí, Jafnvægi-Úr Jafnvægi, og Friðgeirs Helgasonar, Stemning.
Lesa meira
Päivi Kristiina Vaarula.

Þriðjudagsfyrirlestur: Päivi Kristiina Vaarula

Þriðjudaginn 10. október kl. 17-17.40 heldur finnska textíllistakonan Päivi Vaarula Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Being a textile artist. Þar mun hún fjalla um list sína og starfsferil. Aðgangur er ókeypis.
Lesa meira
Leiðsögn á fimmtudaginn

Leiðsögn á fimmtudaginn

Fimmtudaginn 5. október kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu, Ketilhúsi um sýningar Rúrí, Jafnvægi-Úr Jafnvægi, og Friðgeirs Helgasonar, Stemning. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningarnar og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.
Lesa meira
Þriðjudagsfyrirlestur fellur niður

Þriðjudagsfyrirlestur fellur niður

Þriðjudagsfyrirlesturinn sem fara átti fram í dag kl. 17 fellur niður vegna óviðráðanlegra orsaka. Næsti Þriðjudagsfyrirlestur verður haldinn eftir viku, 10. október, en þá mun textíllistakonan Päivi Vaarula halda erindi undir yfirskriftinni Being a textile artist.
Lesa meira
Leiðsögn á fimmtudaginn

Leiðsögn á fimmtudaginn

Fimmtudaginn 28. september kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu, Ketilhúsi um sýningar Rúrí, Jafnvægi-Úr Jafnvægi, og Friðgeirs Helgasonar, Stemning. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningarnar og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.
Lesa meira
Natalia Dydo.

Þriðjdagsfyrirlestur: Natalia Dydo

Þriðjudaginn 26. september kl. 17-17.40 heldur Natalia Dydo, verkefnisstjóri, Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu, Ketilhúsi undir yfirskriftinni The Art of the Polish Posters. Þar mun hún fara yfir helstu strauma og stefnur í pólsku prentverki á 20. öld, s.s. pólska plakataskólann sem varð vel þekktur á 7. áratugnum. Hið sjónræna samtal sem finna má í pólskum plakötum er skilgreint sem samruni myndmáls og texta og aðgreinir þau frá hefðbundinni auglýsingahönnun. Fyrirlesturinn er hluti af viðburðaröð sem fram fer á Akureyri og í Reykjavík í september og október og ber yfirskriftina Polish Poster under Northern Lights.
Lesa meira
Alfredo Esparza, ljósmyndari.

Þriðjudagsfyrirlestur: Alfredo Esparza

Þriðjudaginn 19. september kl. 17-17.40 heldur mexíkóski ljósmyndarinn Alfredo Esparza Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Contemporary Mexican Photography. Fyrirlesturinn gefur innsýn í mexíkóskar hefðir og menningu sem skapast hafa í tengslum við ljósmyndun – bæði listræna- og heimildaljósmyndun. Rætt verður um hin margvíslegu umfjöllunarefni samtíma ljósmyndara. Aðgangur er ókeypis.
Lesa meira