Sköpun utan línulegrar dagskrár

Sköpun utan línulegrar dagskrár – skapandi samvera fyrir fjölskyldur 

Verkefnið felst í að bjóða fjölskyldum að taka þátt í rafrænni listsmiðju á vegum Listasafnsins á Akureyri. Í samvinnu við sína nánustu fá börn tækifæri til að skapa sitt eigið listaverk óháð stað og stund. Lögð er áhersla á að þátttakendur fái að sýna afraksturinn á sérstakri sýningu sem sett verður upp í Listasafninu. Frábært tilefni fyrir fjölskyldur að njóta samveru og skapa utan línulegrar dagskrár. Umsjón með fyrstu smiðjunni hefur Sigrún Björg Aradóttir, grafískur hönnuður.

Leiðbeiningar: 

  • Fjölskyldan horfir saman á listsmiðjuna. Myndbandið er aðgengilegt hér á heimasíðu og á samfélagsmiðlum.
  • Í sameiningu vinnur fjölskyldan sína eigin útgáfu af verkinu á þeim tíma sem hentar best.
  • Þegar verkið er tilbúið má koma með það í móttöku Listasafnsins á Akureyri. Opið er alla daga kl. 12 til 17.
  • Skila þarf verkum fyrir 13. október 2021 og passa að þau séu merkt.
  • Laugardaginn 16. október 2021 verður opnuð sýning á verkunum í safnfræðslurými safnsins.
  • Allir sem skila inn listaverki fá glaðning.
  • Sýningu lýkur 14. nóvember 2021 og þá fá börnin verkin sín til baka.

Ef spurningar vakna má hafa samband við Heiðu Björk Vilhjálmsdóttur fræðslufulltrúa heida@listak.is.
Verkefnið er styrkt af SSNE.

HÉR má horfa á listsmiðjuna.