Álfareiðin


Lárus H. List
Álfareiðin  
Listasafnið á Akureyri, vestursalur, 21. - 26. febrúar 2015

Huldufólk býr í klettum eða steinum og iðkar búskap sinn líkt og mennirnir. Háskalegt er jafnan að styggja álfa. En sé þeim gerður greiði eru ríkuleg laun vís.

Lárus H. List hefur haldið yfir 20 einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum á Íslandi og erlendis. Lárus vinnur aðallega með olíu og akríl á striga, en einnig í önnur form eins og ljósmyndir, ritlist, videolist og hljóðlist. Hann hefur einnig skrifað klassískar tónsmíðar og gefið út skáldsögur.